Um mig

Eftir að hafa lokið
stúdentsprófi við Menntaskólann á Egilsstöðum gáfu við Jónas
vinur minn út plötuna „Sólstrandargæjarnir“ en hún bar nafn
hljómsveitarinnar. Næstu misseri á eftir höfðum við félagarnir
atvinnu af hljómsveitinni og gáfum út tvær plötur í viðbót áður
en hljómsveitin hætti.
Árið 1997 fluttum ég og
Alla konan mín til Danmerkur og bjuggum í Kaupmannahöfn næsta
fjóra og hálfa árið. Þar tók ég eins árs nám í Traditional
Animation og í kjölfarið af því fékk ég inngöngu í BA nám í
Computer Visualization & Animation við Bournemouth University.
Að loknu háskólanámi í Englandi tók ég til starfa hjá Double Negative VFX í London og vann þar næstu árin sem Animator og Technical Director við margar mismunandi kvikmyndir. Reynslan sem ég öðlaðist innan Double Negative reyndist mér ómetanleg. Ég fékk jafnan mjög frjálsar hendur sem listamaður í verkefnum þar og náði að læra af einstakalega hæfileikaríku fólki og eignast þar marga vini til lífstíðar.
Eftir fjögur og hálft
ár hjá Double Negative gekk ég til liðs við Framestore
Animation þar sem ég starfaði næstu tvö árin. Hjá
Framestore vann ég við ótrúlega skemmtileg og skapandi
verkefni eins og til dæmis The Tale of Despereaux,The Golden
Compass og Avatar. Sumarið 2009 var mér svo boðin
staða hjá Cinesite og fékk tækifæri til að vinna við gerð
á nýrri mynd frá Pixar en það var of stórt tækifæri til
að láta fram hjá sér fara. Í dag starfa ég við gerð myndarinnar
John Carter of Mars.
Ég er búsettur í London ásamt eiginkonu minni Aðalbjörgu Ólafsdóttur og dætrum okkar.
